Velkomin

Hvern langar ekki að verða skuldlaus?

Fjármál eru feimnismál og meiri líkur eru á að fólk opinberi og ræði frekar í sannleika um kynlíf sitt en fjármál. En meðan fjármál okkar eru í þoku er mjög ólíklegt að við gerum okkur grein fyrir raunverulegri stöðu og getum sett okkur raunhæf markmið.

Verið velkomin á bloggsvæðið Skuldlaus

Megintilgangur okkar með þessu bloggi er að aðstoða fólk eins og okkur sem hefur brennt sig illa á þokukenndri skuldasöfnun og/eða tekjuskortun.  Ef þú hefur barist við vanskil, tekjuskort, skuldbreytingar og upplifað vanlíðan og ótta vegna þessa, þá getur þú fundið þér verkfæri og hugmyndir á þessari síðu til að aðstoða þig.

Þetta er ekki enn ein vefsíðan sem vill kenna þér að spara eða græða peninga.  Við einfaldlega bjóðum þér að fara að hugsa öðruvísi um peninga.   Stærsta vandamál skuldara er nefnilega ekki skuldin sjálf eða upphæð hennar.  Vandamálið er viðhorfið gagnvart peningum og skömmin við að skulda.   Flest okkar eru haldin þeirri meinloku að lífið verði ekki gott fyrr en við skuldum ekki, og að við getum ekki fundið til hamingju fyrr en við erum frjáls frá lánadrottnum.

Þessi vefur er tileinkaður tilfinningunum og upplifuninni við það að skulda, og leiðum til að lifa með skuldunum okkar.

Þér er velkomið að kynna þér allt sem hér kemur fram og nýta þér til þess að losna frá skuldum og vanlíðan sem þeim fylgja.

Hér er allt þér að kostnaðarlausu, en vinna þín hér getur fært þér fjárhagslegan ávinning.  En miðað við okkar reynslu er öruggt að vinna þín mun færa þér hugarró og innihaldsríkara líf.

Hér á vefnum eru margar greinar um skuldafíkn í ýmsum myndum, aðferðir sem stuðla að frelsi frá skuldum, og ýmis verkfæri og aðferðir til þess eru hér á síðunni.

Við munum eftir fremsta megni að miðla sem flestu um skuldafrelsun og birta þýtt og óþýtt efni af netinu, úr bókum og frá eigin reynslu. Kynnið ykkur einnig tengla á tengt efni hér til hliðar.

Í boði er frekari stuðningur við skuldara, til dæmis í formi fréttabréfa og tölvupóstsamskipta.  Bíð ég ykkur að skrá ykkur á póstlistann og fá reglulega sendar fréttir og tilkynningar um nýjar greinar.

Þá mælum við með DA (Debtors Anonymous) sem halda nokkra fundi á viku og bjóða upp á einn mesta og öruggasta stuðninginn í þessari nýju reynslu.

Hafir þú  frekari spurningar um skuldafíkn, og/eða efni á þessum síðum,  sendu mér tölvupóst eða hringdu.

Með vinsemd og virðingu,

Haukur

Tölvupóstfang: skuldlaus.blog@gmail.com

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.